21.03.2012 22:44
Árið

Allt of langt síðan eitthvað gerðist hérna seinnast...alla
vega byrja á því að segja Gleðilegt nýtt ár.
Það er alltaf nóg að gerast hér á bæ. Eins og er er
hesthúsið fullt bæði af okkar eigin hrossum og frá öðrum. Gaman að sjá hvernig
tryppin eru að vaxa og koma mynd á hvernig þau eiga eftir að þroskast.
Einnig höfum við verið að taka þátt í keppnum og hafa
Björgvin og Klöpp verið að slá í gegn. Unnu B-úrslit á KB-móti 28. febrúar og
enduðu í 5. sæti í A-úrslitum. Lentu svo í 5. sæti á Granamóti á Miðfossum 15. mars.
Erum farin að reka 1-2 í vikur frá Stangarholti heim að
Skjólbrekku. Þetta eru um 10 km sem gefur hrossunum frelsi til að hlaupa en
einnig að læra að vera í rekstri. Alltaf gott að finna nýjar æfingarleiðir,
bæði svo við fáum ekki leið á því og hrossin.
Á endanum vil ég minna á söluflipann sem við erum að byrja setja inn og myndaflipann.

- 1
